Kristjana - Sigurrós - Herdís- Bryndís

Hakuna matata!

27.11.2007 20:00:57 / sigurrós

say whaaat

okei þessi síða gæti ekki verið meira dauð

glatað

ég segi að hún sé búin að vera ... hvort eð er allt dottið útaf henni útaf þessu fokking blog.central.is!

og ég sakna ELF


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 20:13:39 / sigurrós

haha :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 18:45:07 / sigurrós

afmælisblogg

mig langaði til að óska systir minni til hamingju með tvítugsafmælið! vona að dagurinn hafi verið skemmtilegur hjá þér:)

í þessu töluðu orðum er Úlla að segja mer það að hún ætli að fara að setja myndirnar frá Madrid inná freshness en þær eru á myspacinu hennar, ætti eitthvað að lífga upp á síðuna! svo koma fleiri spánarmyndir þegar ég hef tíma, margir með myndavélar!;P annars var alveg æðislegt úti á Spáni! mikið skoðað, mikið verslað, meira djammað og frekar lítið sofið. þakka öllum krökkunum fyrir geðveika ferð! svo þarf bara að plana smá hitting bráðlega:D

-sigurrós


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 09:38:29 / freshness

Vííí....

Það er mikill spenningur í meirihluta síðumeðlima því á morgun...

...er ég (Herdís) og Alex að fara til hinnar fallegu borgar Kaupmannahafnar í Danmörku =D Förum á morgun og verðum fram á sunnudag! Versla, djamma og of course fara í tívolíð :)

....en ekki nóg með það þá eru Sigurrós og Kristjana Júlía að fara líka en þær eru að fara til Madríd á Spáni ;P Skemmtið ykkur vel elskurnar ;**

Herdís

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 13:35:46 / freshness

Esjugangan ógurlega!

Fimmtudaginn 11.október lögðum við, göngugarpar FG, upp í leiðangur á Esjuna. Ég, Kristjana Júlía, og Herdis Ómars örkuðum þennan litla hól eins og ekkert væri og þegar við vorum komnar uppá topp hólsins þá var svo mikið rok að kennarinn þurfti að fara tilbaka og snúa hinum krökkunum við því þetta tók þau svo rosalegan tíma, þessi litlu grey. En við Herdis og Petrína fórum rétta leið niður, en sú ferð gekk ekki eins og skildi. Þar sem ég kom á Converse skóm í gönguna hafði ég enga stjórn á sjálfri mér, skórnir tóku bara við. Rétt eftir að Petrína hafði varað mig við sleipri drullu þá rann ég auðvitað kylliflöt í þennan drullupoll! Svo til að bæta þetta aðeins þá missteig ég mig í gömul fótbrot og hljóp svo niður uppá gamanið. En þetta var allt þess virði þvi að við komum heilum 20 mínútum á undan stelpunum niður! Haaahh!

 
 


Við fórum að verða soldið hræddar um stelpurnar og byrjuðum að leita af þeim

 
 
 

                                                  En þær voru hvergi sjáanlegar 

 
 
 

 

 En þær skiluðu sér loksins!

 

 

Bara til að minna ykkur aðeins á það þá eru

MySpace GlittersMySpace GlittersMySpace GlittersMySpace GlittersMySpace GlittersMySpace GlittersMySpace GlittersMySpace GlittersMySpace GlittersMySpace Glitters

þar til við Sigurrós Oddný leggjum leið okkar til Madrid, Spain.

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 15:15:39 / sigurrós

sexdagar

iespana


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 10:59:58 / freshness

DÍANA HRUND! ;*

Í DAG ÞANN 5. OKTÓBER ÁRIÐ 1989 FÆDDIST LÍTIL PRINSESSA Í HEIMINN! HÚN VAR SKÍRÐ ÞVÍ FALLEGA NAFNI DÍANA! EN ÉG VILDI ÓSKA ÞÉR INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ÁSTIN MÍN ÁSAMT HINUM Í SÍÐUNNI ;**
 
 
 ELSKUM ÞIG ALLAR ;**
HERDÍS

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 09:54:17 / sigurrós

Góðan daginn fólk!

Nú hugsiði eflaust með ykkur af hverju ég sé að blogga svona snemma! Jú það er vegna þess að enskukennarinn minn ákvað að vera veikur í dag og það þýðir frí í fyrsta tíma hjá mér! Og ég gat ekki sofnað aftur, leiddist og ákvað að blogga..þó að ég hafi alls ekkert til þess að blogga um!

Á laugardaginn héldu Díana og Sandra upp á afmælið sitt sem heppnaðist alveg frábærlega! Það var haldið á Klúbbnum, eða Tropical, og drakk ég mikið af fríum bjór og skemmti mér æðislega, takk elskurnar;* :) myndir koma frá kvöldinu bráðlega, veit að Anna, Dagný og kannski Ragga voru með myndavél svo þær ættu að fara að koma í ljós:)

Annars erum við voðalega latar í myndatökum þessa dagana. Góð skýring er á því hins vegar; Myndavélin mín er biluð (datt í gólfið í bústaðarferð;), Herdísar var stolið!, Úlla á ekki digital myndavél og Bryndís er bara svo fokking löt að taka myndir! Þurfum virkilega að fara að gera eitthvað í þessu því að annars deyr þessi síða út mjöög fljótlega! Annars er maður alltaf að henda inn einni og einni mynd inn á myspacið sitt, svo um að gera að fylgjast með þar. Held að við séum allar með myspace nema Bryndís, nema hún sé búin að redda því án þess að ég viti af ?

Næstu dagar eiga eftir að líða eins og heil eilífð vegna þess að ég geri lítið annað en að hugsa um Spánarferðina okkar Úllu! :D Förum 18.okt til Madrid ásamt fleirum úr spænsku 4o3! Þar sem ég er ekkert búin að fara út í allt sumar hlakka ég þvílíkt til!

Ég er í fýlu út í veðrið. Það er alltaf rigning og rok! Ótrúlegt en satt þá fórum við nokkrar stelpurnar í göngu með gönguhópnum í skólanum á laugardagsmorguninn, í þessu veðri! Drulluðum okkur áfram á móti rokinu og rigningunni og vorum þvílíkt duglegar! ;) annað en sumir sem ákváðu bara að beila og sofa langt fram á dag...

Annars þarf maður að fara að finna sér vinnu. Allir að fá útborgað í dag nema ég.. Ég veit bara ekkert hvar ég vil vinna, ef einhver er með góða hugmynd endilega deildu henni með mér!

En já ég hef bara ekkert meira að segja, og þarf líka að fara að drífa mig í skólann og gera eitthvað af viti!

Adios guapas;*


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 21:16:18 / freshness

MYNDIR MYNDIR

 Myndirnar af Berlínarferðinni eru komnar inn!:) 

 

Ég var búin að reyna seta þær inn 2 sinnum en það tókst aldrei hjá mér:s en hún Sigurrós kom mér til bjargar og reddaðist þessu fyrir okkur :) Njótið vel;)

Kv.Bryndís


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 16:17:48 / freshness

Sælar Stúlkur

 

Jæja núna á morgun mun ég verða á leiðinni út til Berlínar með þýskuhópnum :)

haha 8) mig langaði bara að minna ykkur á það stúlkur mínar;)

Herdís er nú bara beilar henni gast sjéns að fara út en gerði það ekki pffh

mér líst ekkert á þig stúlka!;)

 

The image “http://userpage.fu-berlin.de/~cheubeck/other/ucn_anf/webpage_pics/Berlin_BG_CIMG3677_l.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Þetta er Branderborgarhliðið ég verð þar á Sunnudaginn;) haha

http://content.answers.com/main/content/wp/en-commons/thumb/1/1e/300px-Estadi_Ol%C3%ADmpic_Llu%C3%ADs_Companys_-_Barcelona,_Spain_-_Jan_2007.jpg

Þetta er ólímpíuleikvangurinn! Þar verð ég á leik Herthu Berlin vs. Borussia Dortmund! vúhú! á laugardaginn!!:)

 

Kv.Bryndís!


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 15:58:43 / freshness

Vúhú! =D

Jæja, ég skal taka það að mér að blogga fyrst að enginn gerir það! Þessi síða er alveg að deeeeyja! :/

Margt búið að ske síðan seinast, humm...var ég nokkuð búin að blogga um Bene eða neitt, ha!?
Þessi ferð á eftir að vera ógleymanleg, var svooo gaman þarna og kynntist maður alveg fullt af íslendingum, þar sem það voru BARA Íslendingar þarna eiginlega! Ég nenni nú ekki að fara að koma með einhverja ferðasögu hérna en skal segja frá því sem stóð upp úr:

  • Terra Mitica!! - tívolígarður með geðveikum tækjum, sérstaklega rússíbönum þá! Og draugahúsinu náttúrulega sem var viiiiðbjóður, haha :'D En þar fengum við okkur öll henna-tattoo! Strákarnir allir með "Playgirl", "Partygirl", "Bad Girl" eða eitthvað þess háttar, þannig ég þurfti auðvitað að fá mér "Duuude" ;)
  • Jokers! - Íslendingastaðurinn- voru allir þar að skemmta sér! Þar einmitt smakkaði ég "Fat Frog" drykkinn sem var blanda af Smirnoff Ice, Breezer Tropical Orange, Vodka Blue og svo smá vodka! Best í heimi :P Þar var líka "Live Sex Show", "Sticky Wicky" og "Sexy Sophie"! Snilldar staður!
  • Pöbbaröltið - voru svona 100-200 manns að djamma saman og labba á milli skemmtistaða! Svo endaði þetta á skemmtistað með heavy stórri sundlaug þar sem allir fóru ofan í á nærfötunum eða þá bara öllum fötunum! Snilldarkvöld!
  • Ströndin 8) -þarf ég að segja meira!?
  • Nautið :D -fór ábyggilega svona 10 sinnum á það! Algjör snilld! Ég og Gústi náðum um 2 mínútum á því takk fyrir! :)
  • Tony Roma's - bestu rif í heimi!
  • PSP -eyddi ófáum stundum, þegar maður var að slaka á, í FIFA 2007 með Sissa!

Svo var það þegar:

  • Sissi fékk sér tattoo - sem stóð á "Gamelius"!
  • Sissi braut sjónvarpið -það þurfti semsagt að borga með klinki í einhvern svona kassa og Sissi vildi fá allt klinkið til baka en braut gaffal í skráargatinu!
  • Kryddi braut hurðina - hann sleppti sér aðeins of mikið við að syngja "3-0 fyrir Breiðablik, 3-0 fyrir Breiðablik". Það má nú líka segja frá því að hann öskraði það og söng hástöfum út af svölunum þangað til allir urðu "fjúkandi reiðir".
  • Kryddi sleit sturtuhausinn - já hann var allur í því að eyðileggja hluti þarna úti ;)
  • ég og Kryddi vorum föst í hinum hlutanum á borginni -fórum á einhverja allt aðra strönd og vorum svo ekki með neinn pening til að komast til baka, þar sem kortið mitt bilaði, og þurftum að labba eiginlega alla leiðina heim í brennandi hita! :/
  • Alex var næstum því búinn að drepa sig í vatnsrennibraut -Þetta var svona rennibraut þar sem maður rennur fyrst lárétt og svo fer hún alveg beint niður, og ég og Gilli vorum komin niður! Er þá okkur litið upp og sjáum við þá Alex sprikla í lausu lofti þarna! :D Þá hafði hann verið svo gáfaður og vildi sjá niður fyrir sig þannig að hann beygði sig fram þegar lóðrétta kom og fór næstum því kollhnís niður hana! hahaha =D
  • Gústi og Fannar fóru saman í sturtu!
  • Gústi sápaði Sissa í sturtu!
  • fólk var farið að kvarta yfir vondri lykt í íbúð strákanna -þá var maður orðinn svo vanur að vera þarna að maður fann ekki lyktina! En maður skildi fólkið svosem þegar þeir tóku til eftir um 2 vikur og fundu meyglaða hamborgara frá fyrsta deginum! jakk...

En vá það gerðist svo mikið þarna sem ég man ekki eftir núna! Held þetta sé komið gott :) Tók því miður engar myndir en fann nokkrar á netinu hjá Andreu og Bertu ;)

Aug 13, 2007
Thelma, Gilli og Fannar!
Aug 15, 2007
Andrea, Linda og ég ;)
Aug 15, 2007
Gústi og Sambó!
Aug 10, 2007
Sissi flottur ;)                         Sticky Vicky!

En stelpur lumið þið ekki á einhverjum myndum!?

-Herdís


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 21:38:03 / sigurrós

hola guapas!

ég hef ekkert að blogga um en ég var bara komin með ógeð af gamla blogginu mínu

Helgin var skemmtileg! Hagkaupsparty á föstudaginn og svo Nasa á laugardaginn:P mikið drukkið, og sumir drukku meira en aðrir...haha

eg og herdís!                                                               herdís,sveinbjörg og ég:)

maggi beib og einhver!                                            

svo var ég að sjá svo ótrúlega krúttlegar myndir af apríl þegar hún var lítill hvolpur sem ég verð bara að deila með ykkur:D

haha þarna var eyrað á henni ekki svona bæklað:P

 

veit að þetta var mjög ómerkilegt blogg, en smá myndablogg er skárra en ekkert blogg.. right?

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 22:51:31 / sigurrós

ónefnd færsla

ég var alveg komin með ógeð á því að sjá færslu um benidorm ferðina hjá krökkunum og pirra mig yfir því að vera ekki með í hvert skipti sem ég kom inn á þessa síðu svo ég ákvað bara að gera nýtt blogg..

sumarið alveg að klárast.. seinasta vaktin mín á hrafnistu er á föstudaginn.. svo byrjar skólinn bara í næstu viku, alveg djöfull var þetta fljótt að líða finnst mér! en mjög svo skemmtilegt þó! svo er bara spurning hvar maður vinnur í vetur með skólanum, hef ekki hugmynd hvar mig langar að vinna

á laugardaginn seinasta fór ég í kveðjuparty til ólafar láru og svo í bæinn, helvíti gaman! fórum á nasa þar sem páll óskar var algjörlega að meikaða!

ég og ólöf einhverstaðar þarna uppi á sviði !

-sigurrós!

 

á eftir að sakna þessara aðeins of mikið í vetur!!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 18:35:04 / freshness

=D

Þjóðhátíð er nú senn á enda og var það ekkert nema snilldar helgi! Hef aldrei upplifað aðra eins stemningu!! Á fimmtudeginum var Húkkaraballið og svo alla hina dagana var bara endalaust djamm! Fórum í svona private-party í Hvítu Eyjatjaldi þar sem Hreimur, Vignir og Toby Rand héldu stuðinu uppi. Fórum svo heim aðfaranótt þriðjudags með Herjólfi!

En ætlaði nú bara rétt að segja frá Eyjum en nú er annar stórviðburður að líta dagsins ljós!

Og þá er ég að tala um BENEDORM!

Ég fékk símtal í morgun frá honum Alexi að aðeins einn miði væri eftir til Bene og það sem ég gerði var að fara og fjárfesta í honum! =D Allir búnir að kaupa miða þannig ég og Kiddi vorum heppin að fá seinustu miðana! :) Fullt af fólki að fara þannig það verður geðveikt stemning! Förum snemma á morgun og komum svo aftur heim eftir um 2 vikur!

úff...get ekki beðið eftir að liggja í hitanum með einn svona:

namm ;)

En jæja við sjáumst eftir tvær vikur =D Þá mætir maður bara beint í skólann!;)

Bæjjó ;* Herdís


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 01:42:34 / freshness

***ÞJÓÐHÁTÍÐ***

Þar sem ég hef engan tíma til að blogga á morgun þá langaði mig bara til að segja að ég og Fjóla erum farnar á Þjóðhátíð í Eyjum!!

Sjáumst eftir viku ;**

*Herdís*


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 27 nóvember
Leitarbox

Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
SIGURR�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1774 dögum
Brynd�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1681 dögum
Sigurr�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1774 dögum
Brynd�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1681 dögum
Klukkan